Björgunarsveitin Húnar

.

12.02.2012 21:28

Aðstoð á Holtavörðuheiði


Húni 4, tekið á 112 daginn 2012 á Hvammstanga. Mynd: GÖJ
Upp úr klukkan fimm dag var beðið um aðstoð björgunarsveitarinnar á Holtavörðuheiði en bíll vegfaranda hafði fokið út af veginum en allhvasst var á heiðinni seinni partinn. Farið var á Húna 4 Ford Econoline í verkefnið og gekk vel að ná bílnum upp á veginn aftur, á sama tíma óskaði lögregla eftir að aðstoðuðum vegfarendur sem veltu bíl sínum ekki langt frá þeim sem verið var að koma fyrri bílnum upp á veg. Farið var að bílnm sem valt og sem betur fer urðu engin slys á fólki við veltuna. Á sama tíma voru félagar okkar úr HSSR á leiðinni yfir heiðinni og haft var samband við þá með hugsanlega viðbótar aðstoð í huga og endaði það svo með því að þeir tóku þá sem höfðu lent í bílveltunni aftur með sér suður yfir heiði en bíllinn var svo fluttur norður á Borðeyri.

11.02.2012 17:05

112 dagurinn


Tekið í Húnabúð í dag.

þá er dagsskrá 112 dagssins á Hvammstanga lokið en hún hófst með því að öllum var boðið með í hópakstur með lögreglu, sjúkrabílum, björgunarsveit og slökkviliði. Eftir hópaksturinn var opið hús þar sem fólk gat kynnt sér starfsemi okkar. Í Húnabúð var Rauðakrossdeildin á Hvammstanga með kynningu á starfsemi sinni. Nokkrar myndir frá dag er hægt að skoða hérna . Þökkum öllum þeim sem lituð við og vonandi eruð þið einhvers fróðari um starf okkar.

09.02.2012 10:35

Leit í Svartárdal

Björgunarsveitjn Húnar var kölluð út í gærkvöld á áttunda tímanum ásamt sveitum af svæðum 5,9 og 10 til leitar að þremur strokupiltum af meðferðarheimilunu Háholti í Skagafirði. Þar sem ljóst var í upphafi að þeir væru í Svartárdalnum beindist leitin að því svæði og vitað var að þeir væru illa búnir til útivistar var allt kapp lagt á að finna þá sem fyrst og gekk það eftir og var búið að finna þá alla rétt undir miðnætti.

Við leitina notuðu björgunarsveitirnar bæði hitamyndavélar og nætusjónauka í meira í mæli en gert hefur verið áður hér á þessu svæði en þessi tækni kom mjög vel út þarna þar sem Svartárdalurinn er þröngur og sést upp á hæstu brúnir til beggja handa frá vegi.

04.02.2012 14:20

Æfing á Skagaströnd


Tekið í morgun í íþróttahúsinu á Skagaströnd / Mynd: Björn Ingi
Í dag tókum við klifuræfingu með félögum okkar í Bjsv. Strönd á Skagaströnd en í íþróttahúsinu er þessi fíni klifurveggur. En á vef Bjsv. Strandar er sagt nánar frá æfingunni. Einnig tók hann Björn Ingi slatta af myndum sem hægt er að skoða hérna.

01.02.2012 21:20

Aðstoð við Hvítserk

Nú undir kvöld var óskað eftir aðstoð sveitarinnar  en erlendir ferðamenn lentu í vandræðum við Hvítserk og komust ekki til baka á jeppa sínum. Farið var á Húna 2 og gekk vel hjá strákunum að koma þeim aftur upp á þjóðveg og gátu ferðamennirnr haldið áfram för sinni.

01.02.2012 17:01

Æfing á Skagaströnd


Tekið fyrir einhverjum árum að vísu ekki í klifurveggnum á Skagaströnd.

Næst komandi laugardag verður æfing með félögum okkar í Björgunarsveitinni Strönd en fara í línur, klifur o.fl. tengt og verður æfingin í íþróttahúsinu á Skagaströnd og byrjar kl 10:00 og það verður farið úr Húnabúð kl 09:00.

Pétur veitir nánari upplýsingar í síma 895-1995.

30.01.2012 16:36

Æfing og útkall í framhaldinu


Hagglund bíll okkar við Hveraborg. Mynd: Gunnar Ægir

Nú um helgina var sveitin á æfingu á Arnarvatnsheiði og var lagt í hann á föstudag. Ekki farin hefðbundin leið inn á heiðina heldur var farið um Austurárdal og á Lomberveginn svo af honum fram Austurárdalshálsinn um Kvíslavötn og svo endað í Urðhæðarskála þar sem gist var. Með í för voru þrír  félagar úr Björgunarsveitinni Strönd á Skagaströnd en þeir komu á sýnum eigin bílum sem og var Magnús Magnússon prestur á Hvammstanga með í för líka. Á laugardeginum var svo haldið áfram í vesturátt með viðkomu í Fellsskála, Skútagili og Hveraborg.

Er hópurinn var á heimleið með stefnu á Vesturárdalinn kom aðstoðarbeiðni vegna vélsleðaslyss sem varð í vestanverðu Vatnsnesfjalli og hafði vélsleðamaður slasast illa. Ákveðið var að setja allt á fulla ferð til að komast á slysstað með umbeðnar bjargir og á sama tíma voru björgunarsveitirnar á Skagaströnd og Blönduósi ásamt Svæðisstjórn 9 ræstar út þar sem ekki var vitað hver yrði fyrstur á vetttvang en er ljóst var að hópurinn okkar myndi komast fyrst að slysstaðnum var félögum okkar fyrir austan snúið frá. Vel gekk að komst að slysstaðnum m.v. aðstæður en farið var upp frá Syðri-Völlum. Á vettvangi var læknir frá Hvammstanga byrjaður að sinna þeim sem slasaðist sem var svo fluttur með Húna 2 á Heilsugæsluna á Hvammstanga.

Myndir af æfingunni sem hann Gunnar Ægir Björnsson tók er að finna á þessum link: http://hunar.123.is/album/default.aspx?aid=220737

26.01.2012 07:28

Aðstoð á Hrútafjarðarhálsi


Eftirstöðvar óveðurssins, tekið rétt vestan við Norðurbraut í morgun.

Í gærkvöld upp úr klukkan níu fljótlega eftir að veðrðið skall á hérna óskaði Neyðarlínan eftir aðstoð sveitarinnar vegna fólks sem var í vandræðum er það lenti utan vegar á Hrútafjarðarhálsi, farið var á Húna 2 á staðinn og tókum við fólkið með inn á Hvammstanga en skilja þurfti bíl þess eftir þar sem hann var bilaður. Á heimleiðinni kom önnur aðstoðarbeiðni en bíll hafði lent utan vegar við Laugarbakka og var hann spilaður upp. Öll þessi verkefni gengu vel m.v. aðstæður en okkar menn voru komnir aftur í Húnabúð um klukkan hálf eitt í nótt.

Þetta er fjórða útkallið sem björgunarsveitin sinnir frá því á föstudag.

23.01.2012 14:52

Fjarnám Björgunarskólans

Fjarnám Björgunarskólanns er að fara af stað á nýju ári 2012.  Eftirfarandi áfangar hefjast þessa daga.

- 27. janúar Fyrsta hjálp 1

- 27. janúar Fjarskipti

- 3. febrúar Rötun

- 3. febrúar Ferðamennska

- 10. febrúar Björgunarm. í aðgerðum

- 10 febrúar Leitartækni

- 17. febrúar Öryggi við sjó og vötn

- 17. febrúar Fjallamennska 1

- 24. febrúar Snjóflóð 1

Nánari upplýsingar er að finna á www.landsbjörg.is undir Björgunarskólinn, einnig er hægt er að senda okkur tölvupóst á skoli@landsbjorg.is eða hafa samband.

23.01.2012 11:15

Alltaf nóg að gera

Um miðjan dag í gær var óskað eftir aðstoð sveitarinnar er ökumaður lenti utan vegar á Laxárdalsheiði. Farið var á Húna 4 frá Borðeyri og gekk vel að aðstoða ökumannin og honum var svo fylgt yfir heiðina.

22.01.2012 13:30

Fyrstahjálp 1


Tekið í Húnabúð um helgina. Mynd: GÖJ

Um helgina var námskeiðið Fyrstahjálp 1 haldið í Húnabúð og byrjaði það föstudaginn 20.1 og lauk svo í dag 22.1 með æfingu og prófi. Námskeið sem þetta er nauðsynlegt að sækja fyrir alla björgunarsveitamenn en þarna voru bæði frá okkur félagar sem hafa tekið námkeiðið áður og svo aðrir sem voru að taka það í fyrsta skipti. En námskeiðið sóttu sjö félagar úr Húnum og svo tvö frá Björgunarsveitinni Ársæl. Leiðbeinandi á námskeiðinu var Katrín Hilmarsdóttir.

22.01.2012 12:52

Norðurbraut

Nú í morgun upp úr klukkan sex óskaði Neyðarlínan eftir að við myndum fara út á Norðurbraut og aðstoða bílstjóra á "trailer" sem var fastur þar og vildi hann fá einhvern til að koma með skóflu þar sem hann væri með enga og það myndi duga og þar sem búið var að vekja bæði formannin og varaformannin ákváðum við að renna saman með skófluna til bílstjórans á Húna 2. Er við komum á staðin kom í ljós að eitthvað meira en handskóflu þyrfti til að ná bílnum og hjálpuðum við honum við að losa bílinn og tók það góðan klukkutíma að ná honum upp svo hann gæti haldið ferð sinni áfram.

20.01.2012 19:13

Aðstoð í Víðidal


Húni 2, myndin tekinn fyrr á árinu í Línakradal
Um klukkan 19:00 í kvöld óskaði Neyðarlínan eftir því að við myndum aðstoða ferðafólk sem lenti utan vegar á bíl sínum við bæinn Enniskot í Víðidal. Farið var á Húna 2 frá Hvammstanga og gekk vel að leysa verkefnið en spila þurfti bílinn upp.

Þetta er annað útkallið hjá björgunarsveitinni í dag en fyrr dag aðstoðuðum við menn sem lentu í vandræðum á bát eftir að hann varð vélarvana á Miðfirði.

20.01.2012 16:55

Aðstoð á Miðfirði


Tekið í dag við höfnina á Hvammstanga . Mynd: Birgir Karlsson
Björgunarsveitin Húnar var kölluð út í dag um kl 14:00, en tveir menn á smábát lentu í vandræðum er báturinn varð vélarvana á Miðfirði rétt norðan við Hvammstanga. Veðrið var ekki upp á sitt besta þar sem gekk á með dimmum éljum sem gerði það að verkum að skyggni var lítið og þurfti að byrja á að leita að bátnum, en eftir að hann fanst voru mennirnir teknir um borð í björgununarbátinn Birnu og báturinn dreginn til hafnar á Hvammstanga. Allan tímann var verið í sambandi við mennina svo vitað var hvernig ástandið var hjá þeim.
Flettingar í dag: 29
Gestir í dag: 11
Flettingar í gær: 177
Gestir í gær: 59
Samtals flettingar: 605195
Samtals gestir: 127454
Tölur uppfærðar: 23.2.2012 08:04:25

Vafraðu um

Um okkur

Nafn:

Björgunarsveitin Húnar

Afmælisdagur:

24.febrúar 2007

Heimilisfang:

Höfðabraut 30

Staðsetning:

Hvammstangi

Heimasími:

451 2622

Kennitala:

700307-0930

Bankanúmer:

0159-26-1530
Flettingar í dag: 29
Gestir í dag: 11
Flettingar í gær: 177
Gestir í gær: 59
Samtals flettingar: 605195
Samtals gestir: 127454
Tölur uppfærðar: 23.2.2012 08:04:25

Tenglar

clockhere
eXTReMe Tracker