12.02.2012 21:28
Húni 4, tekið á 112 daginn 2012 á Hvammstanga. Mynd: GÖJUpp úr klukkan fimm dag var beðið um aðstoð björgunarsveitarinnar á Holtavörðuheiði en bíll vegfaranda hafði fokið út af veginum en allhvasst var á heiðinni seinni partinn. Farið var á Húna 4 Ford Econoline í verkefnið og gekk vel að ná bílnum upp á veginn aftur, á sama tíma óskaði lögregla eftir að aðstoðuðum vegfarendur sem veltu bíl sínum ekki langt frá þeim sem verið var að koma fyrri bílnum upp á veg. Farið var að bílnm sem valt og sem betur fer urðu engin slys á fólki við veltuna. Á sama tíma voru félagar okkar úr HSSR á leiðinni yfir heiðinni og haft var samband við þá með hugsanlega viðbótar aðstoð í huga og endaði það svo með því að þeir tóku þá sem höfðu lent í bílveltunni aftur með sér suður yfir heiði en bíllinn var svo fluttur norður á Borðeyri.