|
Björgunarsveitin Húnar . |
|
Færslur: 2012 Febrúar29.02.2012 22:56Alltaf nóg að gera27.febrúar Það eru búin að vera nokkur verkefnin hjá björgunarsveitinni í vikunni en í fyrradag (27.2)óskaði lögregla eftir að við myndum aðstoða ferðalang sem lenti utan vegar á bíl sýnum á Hrútafjarðarhálsi en þar sem hún var ekki alveg viss hvar hún væri tók smá tíma að finna út úr því en bíllin var illa fastur utan vegar við Svertingsstaðá og mátti litlu muna að hún lenti í krapnum í ánni. En allt fór vel að lokum og það gekk vel að aðstoða hana og bíllin náðist upp á veg aftur og gat hún haldið áfram ferð sinni austur á Akureyri. 28.febrúar Hjólað í afmælistertuna í Húnabúð Í gærkvöld var svo Afmælisæfing sveitarinnar og buðum við hinum sveitunum á svæði 9 með í æfinguna og svo eftir á var haldið upp á fimm ára afmæli Bj.Húna í Húnabúð. Æfingin gekk vel og allir hóparnir sem tóku þátt leystu þau verkefni sem lögð voru fyrir þá. Eftir æfinguna var svo haldið upp á afmælið með stórri hnallþóru úr Brauð og kökugerðinni á Hvammstanga. 29.febrúar Óskað var eftir aðstoð okkar rétt upp úr tíu í kvöld vegna umferðaróhaps á þjóðvegi 1 norðan við Melstað í Miðfirði en flutningabíll lenti þversum á þjóðvegi 1 og stöðvaði alla umferð um tíma. Einnig lenti lenti fólksbíll utan vegar á sömu slóðum. Vel gekk að leysa verkefnið og var búið að opna aftur fyrir umferð um ellefu leytið. Skrifað af GÖJ 26.02.2012 17:03AfmælisæfingN.k. þriðjudag 28.febrúar verður afmælisæfing hjá sveitinni og höfum við boðið félögum okkar í björgunarsveitunum á svæði 9 þ.e.a.s. Bjsv. Strönd og Bf. Blöndu að taka þátt í æfingunni með okkur og hefst hún kl 20:00. Eftir æfinguna verður boðið í kaffi og tekist á við afmælistertuna. Skrifað af Gunnar Örn 24.02.2012 07:14Fimm ára afmæli![]() Sigurgeir formaður Landsbjargar og Þórarin Óli formaður FBS V-Hún fylgjast með er Pétur formaður Káraborgar skrifar undir sameiningar samningin í Borgarvirki. Í dag á Björgunarsveitin Húnar fimm ára afmæli en þann 24.febrúar 2007 voru Björgunarsveitin Káraborg og Flugbjörgunarsveit V-Húnavatnssyslu sameinaðar. Skrifað var undir samning um sameiningu í Borgarvirki þennan dag fyrir fimm árum og þar á eftir var öllum viðstöddum boðið til veislu í Félagsheimilinu á Hvammstanga. Í tilefni afmælissins höfum við boðið boðið félögum okkar í björgunarsveitunum á svæði 9 á Hvammstanga þann 28.febrúar n.k. þar sem halda á "Afmælisæfingu" og svo verður kíkt í afmælisstertuna eftir æfinguna. Skrifað af GÖJ 12.02.2012 21:28Aðstoð á Holtavörðuheiði![]() Húni 4, tekið á 112 daginn 2012 á Hvammstanga. Mynd: GÖJ Upp úr klukkan fimm dag var beðið um aðstoð björgunarsveitarinnar á Holtavörðuheiði en bíll vegfaranda hafði fokið út af veginum en allhvasst var á heiðinni seinni partinn. Farið var á Húna 4 Ford Econoline í verkefnið og gekk vel að ná bílnum upp á veginn aftur, á sama tíma óskaði lögregla eftir að aðstoðuðum vegfarendur sem veltu bíl sínum ekki langt frá þeim sem verið var að koma fyrri bílnum upp á veg. Farið var að bílnm sem valt og sem betur fer urðu engin slys á fólki við veltuna. Á sama tíma voru félagar okkar úr HSSR á leiðinni yfir heiðinni og haft var samband við þá með hugsanlega viðbótar aðstoð í huga og endaði það svo með því að þeir tóku þá sem höfðu lent í bílveltunni aftur með sér suður yfir heiði en bíllinn var svo fluttur norður á Borðeyri. Skrifað af GÖJ 11.02.2012 17:05112 dagurinn![]() Tekið í Húnabúð í dag. þá er dagsskrá 112 dagssins á Hvammstanga lokið en hún hófst með því að öllum var boðið með í hópakstur með lögreglu, sjúkrabílum, björgunarsveit og slökkviliði. Eftir hópaksturinn var opið hús þar sem fólk gat kynnt sér starfsemi okkar. Í Húnabúð var Rauðakrossdeildin á Hvammstanga með kynningu á starfsemi sinni. Nokkrar myndir frá dag er hægt að skoða hérna . Þökkum öllum þeim sem lituð við og vonandi eruð þið einhvers fróðari um starf okkar. Skrifað af Gunnar Örn 09.02.2012 10:35Leit í SvartárdalBjörgunarsveitjn Húnar var kölluð út í gærkvöld á áttunda tímanum ásamt sveitum af svæðum 5,9 og 10 til leitar að þremur strokupiltum af meðferðarheimilunu Háholti í Skagafirði. Þar sem ljóst var í upphafi að þeir væru í Svartárdalnum beindist leitin að því svæði og vitað var að þeir væru illa búnir til útivistar var allt kapp lagt á að finna þá sem fyrst og gekk það eftir og var búið að finna þá alla rétt undir miðnætti. Við leitina notuðu björgunarsveitirnar bæði hitamyndavélar og nætusjónauka í meira í mæli en gert hefur verið áður hér á þessu svæði en þessi tækni kom mjög vel út þarna þar sem Svartárdalurinn er þröngur og sést upp á hæstu brúnir til beggja handa frá vegi. Skrifað af Gunnar Örn 04.02.2012 14:20Æfing á Skagaströnd![]() Tekið í morgun í íþróttahúsinu á Skagaströnd / Mynd: Björn Ingi Í dag tókum við klifuræfingu með félögum okkar í Bjsv. Strönd á Skagaströnd en í íþróttahúsinu er þessi fíni klifurveggur. En á vef Bjsv. Strandar er sagt nánar frá æfingunni. Einnig tók hann Björn Ingi slatta af myndum sem hægt er að skoða hérna. Skrifað af Gunnar Örn 01.02.2012 21:20Aðstoð við HvítserkNú undir kvöld var óskað eftir aðstoð sveitarinnar en erlendir ferðamenn lentu í vandræðum við Hvítserk og komust ekki til baka á jeppa sínum. Farið var á Húna 2 og gekk vel hjá strákunum að koma þeim aftur upp á þjóðveg og gátu ferðamennirnr haldið áfram för sinni. Skrifað af Gunnar Örn 01.02.2012 17:01Æfing á Skagaströnd![]() Tekið fyrir einhverjum árum að vísu ekki í klifurveggnum á Skagaströnd. Næst komandi laugardag verður æfing með félögum okkar í Björgunarsveitinni Strönd en fara í línur, klifur o.fl. tengt og verður æfingin í íþróttahúsinu á Skagaströnd og byrjar kl 10:00 og það verður farið úr Húnabúð kl 09:00. Pétur veitir nánari upplýsingar í síma 895-1995. Skrifað af GÖJ
Flettingar í dag: 65 Gestir í dag: 24 Flettingar í gær: 227 Gestir í gær: 73 Samtals flettingar: 630569 Samtals gestir: 132979 Tölur uppfærðar: 16.5.2012 13:16:11 |
Vafraðu umUm okkur Nafn: Björgunarsveitin HúnarTölvupóstfang: bjsvhunar@simnet.isAfmælisdagur: 24.febrúar 2007Heimilisfang: Höfðabraut 30Staðsetning: HvammstangiHeimasími: 451 2622Bankanúmer: 0159-26-1530Flettingar í dag: 65 Gestir í dag: 24 Flettingar í gær: 227 Gestir í gær: 73 Samtals flettingar: 630569 Samtals gestir: 132979 Tölur uppfærðar: 16.5.2012 13:16:11 Tenglar
Eldra efni
clockhere
|