Björgunarsveitin Húnar

.

10.05.2012 17:28

Peysudagur SL 11.maí


Nú mætum við öll í rauðu peysunum okkar í vinnu og skóla á morgun, Föstudaginn 11. maí.

Hilmar Snorrason, skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna fékk þá hugmynd, að halda árlegan "Peysudag" félagsins og var hún framkvæmd í fyrsta skipti árið 2009. Ætlunin er sú að þann dag á hverju ári skrýðist félagsfólk merktum fatnaði (t.d. rauðu flíspeysunum) við sín daglegu störf. Þannig má gera félagið og meðlimi þess sýnilega víða um þjóðfélagið.

11. maí þykir heppilegur "Peysudagur" þar sem hann hefur sterka skírskotun í sögu félagsins en hann var áður svokallaður lokadagur.

09.05.2012 22:17

Heimsóknarferðin


Tekið við Hafnarfjarðarhöfn.
1.maí s.l. fórum við í okkar árlegu heimsóknarferð og var haldið á höfðuborgarsvæðið. Byrjað var að taka hús hjá Björgunarsveitinni Kili Kjalarnesi, því næst var haldið í Garðabæ þar sem litið var inn hjá Hjálparsveit Skáta. Eftir heimsóknina í Garðabæ var haldið í Hafnarfjörð þar sem við heimsóttum Björgunarsveit Hafnarfjarðar og síðast var farið í Kópavoginn í kíkt inn hjá Hjálparsveit Skáta. Þessar árlegu ferðir okkar hafa skilað inn miklu inn í starfið bæði með því að kynnast félögum vítt um landi og líka lærum við alltaf eitthvað nýtt er við sjáum hvernig aðrar björgunarsveitir halda á málunum.  Með okkur í ferðinni voru félagar okkar á Skagaströnd. Við viljum koma þakklæti okka til þeirra sem gáfu sér tíma til að taka á móti okkur í ferðinni. Nokkar myndir eru inni á myndaalbúminu hérna.

03.05.2012 23:19

Tilboð frá Olís

Kæri félagi

Eins og flestum ætti að vera ljóst þá hafa Slysavarnafélagið Landsbjörg og Olíuverzlun Íslands hf. (Olís)  gert með sér samstarfssamning til næstu þriggja ára. Samningurinn var undirritaður á landsþingi samtakanna sem fór fram á Hellu. Í samstarfssamningnum er sérstaklega kveðið á um sérkjör á eldsneyti og öðrum vörum fyrir félagsmenn, vini og vandamenn björgunarsveita og  slysavarnardeilda á Íslandi.

Til viðbótar við þann afslátt sem félagsmenn fá rennur 1 króna af hverjum seldum lítra + 2.500 krónur eftir að lágmarksnotkun hefur verið náð (200 ltr) til þeirrar sveitar sem valin er í umsóknarferlinu.

Við hvetjum alla félagsmenn til að sækja um Tvennukort Olís/ÓB. Fjárhagsstuðningur sem innifalin er í notkun á kortinu getur skipt milljónum og veitir okkur enn frekar tækifæri til eflingar á okkar sveitum.

Í meðfylgjandi viðhengi eru nánari upplýsingar og linkur til að sækja um kortið. Einnig er hægt að sækja um kortið hér http://www.olis.is/landsbjorg

Kortið er afsláttarkort og notist með öðrum greiðslumiðlum. Kortið er sent heim til viðkomandi án nokkurs kostnaðar.

Ef einhverjar spurningar vakna þá er hægt að hafa samband við undiritaðan

Með von um að þetta nýtist sem flestum.

Jón Ingi Sigvaldason

25.04.2012 20:44

Útivist og björgunarsveit


Tekið á Laugastapa s.l. laugardag.
S.l. laugardag fórum við með hópinn sem verið hefur í Útivist og björgunarsveit á lokadaginn hjá hópnum en hann hófst með rötunarverkefni og síðan tók hvert verkefnið við af öðru böruburður, sig og sigling. Dagurinn gekk vel og stóð hópurinn sig vel í þeim verkefnum sem lögð voru fyrir hann. Búið að er að setja inn nokkrar myndir frá deginum á myndaalbúmið.

24.04.2012 23:34

Heimsóknaferð 1.maí

Þá er komið að hinni árlegu heimsóknaferð sem farin verður 1.maí n.k. Það verður farið á höfuðborgarsvæði þ.e.a.s. í kringum Reykjavík. Ætlum við að heimsækja eftirtaldar björgunarsveitir.
  • Björgunarsveitina Kjöl Kjalarnesi
  • Hjálparsveit Skáta Garðabæ
  • Björgunarsveit Hafnarfjarðar
  • Hjálparsveit Skáta Kópavogi

Lagt verður af stað frá Húnabúð kl 08:00. Skráning og nánari upplýsingar hjá formanni í síma 858 9216 eða senda línu á bjsvhunar@simnet.is

10.04.2012 23:02

Lokadagur


Tekið á lokadeginum s.l. ár.

Lokadagur í unglingastarfinu sem við erum að vinna með grunnskólanum verður laugardaginn 21.apríl n.k. og nú vantar mannskap til að vinna að þessu verkefni en ætlunin er að hafa hann með svipuðu sniði og s.l. ár þ.e.a.s. að þau taki m.a. rötun, sig og siglingu. Þið sem getið verið með í þessu skemmtilega verkefni hafið samband við formann eða Magnús Eðvaldsson.

29.03.2012 18:54



Aðalfundur


Aðalfundur Björgunarsveitarinnar Húna verður í Húnabúð Hvammstanga föstudaginn 30.apríl kl 20:00. Dagskrá samkvæmt lögum um aðalfund. Nýjir félagar eru boðnir velkomnir.

                                                       Stjórn Bjsv. Húna

28.03.2012 08:56

Kuldagallarnir



Kuldagallarnir eru komnir í hús og þið sem áttuð pantaða galla hafið samband við Gústa, Pétur eða Gunnar Örn. Þeir verða einnig til afhendingar á Aðalfundinum n.k. föstudag.

25.03.2012 10:32

Tröllakirkja


Toppurinn á Tröllakirkju í blíðunni í gærdag og VHF endurvarpinn sem er staðsettur á toppnum sést velá myndinni. Mynd: GÖJ

Í blíðunni í gær fórum við nokkrir félagar úr sveitinni með nokkrum öðrum góðum ferðafélögum vestur á Holtavöruheiði og var fyrsta verkefnið að komast upp á Tröllakirkju og sinna viðhaldi á VHF endurvarpa björgunarsveitana en hann er staðsettur á toppi fjallssins (1.001 m.y.s.) og hafði verið bilaður um nokkurn tíma en ekki hefur viðrað þar til nú til að sinna viðhaldi á honum. Vel gekk að koma endurvarpanum í lag og prófanir gáfu til kynna að hann virkar jafnvel og áður. Er við héldum heim á leið var lengri leiðin farin heim yfir Svínadal, Haukadalsskarð með viðkomu á Geldingafelli og þaðan norður á Laxárdalsheiði.

Nokkrar myndir frá í gær er hægt að skoða hérna.

23.03.2012 11:19

Tröllakirkja

Æfingaferð verður á Tröllakirkju á morgun laugardaginn 24.mars. Farið verður frá Húnabúð kl 08:00. Í leiðinni á að sinna viðhaldi á VHF endurvarpanum á fjallinu. Nánari upplýsingar hjá formanni.

13.03.2012 22:25

Aðstoð Borgavirki


Tekið við Borgarvirkiu fyrir nokkrum árum er annar bíll festi sig á þessar leið.
Í gær var óskað eftir aðstoð okkar en erlendir ferðamenn lentu í vandræðum í brekkunni sunnan við Borgarvirki og festu jeppa sinn. Að sjálfsögðu brugðumst við jákvætt við aðstoðarbeiðninni og var farið á Húna 2 og bíll fólkssins dregin upp og gekk verkefnið vel.

11.03.2012 14:50

Frekar hvasst í dag


Það er búið að vera frekar hvasst í dag eins og má sjá á Vegsjá Vegagerðarinnar en þar hafa rauðu litirnir verið í allsráðandi í dag á vefsjánni. En vefsjáin er ansi þægileg síða til að skoða yfirlit stöðuna á veðrinu og er hægt að kíkja inn á hana á þessum link http://vegasja.vegagerdin.is/ .

10.03.2012 13:19

Holtavörðuheiði

Var að skrifa um einhæfan fréttaflutning á síðunni í morgun og nú er fréttaflutningurinn orðin eins og rispuð plata. En beðið var um aðstoð okkar upp úr hádegi en vegfarandi lenti utan vegar norðan í heiðinni, nánar tiltekið í Grænumýrarhallinu. Farið var á Húna 4 frá Borðeyri og gekk vel að koma bílnum upp á veg aftur. En veðurhæð hefur verið að aukast á heiðinni eftir því sem hefur liðið á morguninn og nú sunnan 20 og gengur hærra í vindhviðum.

10.03.2012 07:46

Holatvörðuh.......

........ Þetta fer að verða frekar einhæfur fréttaflutningur á síðunni hjá okkur en björgunarsveitin var aftur kölluð út í gær upp úr klukkan tvö vegna vegfarenda sem voru í vandræðum á heiðinn. Farið var á Húna 4 frá Borðeyri og Húna 2 Hvammstanga, sem og voru félagar okkar úr Björgunarsveitinni Heiðari í Borgarfirði voru kallaðir út á sama tíma, Svæðisstjórn á svæði 9 hélt utan um aðgerðina frá Blönduósi. Verkefnið var aðstoða vegna fastra bíla í Hæðarsteinsbrekkunni, búið var að leysa svo til alveg úr flækjunni er við komum á staðinn og allir komust aftur af heiðinni á farartækjum sínum en veginum var lokað um tíma meðan verið var að koma snjómokstrinum aftur af stað.

09.03.2012 08:24

Fastir á Holtavörðuheiði


Einhvernvegin svona var skyggnið á heiðinni í nótt að viðbættri ófærðinni.

Í nótt um klukkan tvö var óskað eftir aðstoð okkar á Holtavörðuheiði en vegfarandi hafði fest bíl sinn við Miklagil, farið var á Húna 4 frá Borðeyri til aðstoðar. En í þessari ferð voru fleiri ökumenn aðstoðaðri m.a. bílstjóri á "trailer" sem festi sig hátt í heiðinni en stóra dráttavél þurfti til að draga þann bíl upp, sem og voru nokkrir aðrir sem voru á ferðinni aðstoðaðir af heiðinni. Vel gekk að leysa úr þessum verkefnum og voru okkar menn komnir aftur af heiðinni er vel var liðið á nóttina. Þetta er í þriðja skipti í vikunni sem við erum beðnir um að aðstoða vegfarendur sem hafa verið í vandræðum vegna færðar á heiðinni.
Flettingar í dag: 65
Gestir í dag: 24
Flettingar í gær: 227
Gestir í gær: 73
Samtals flettingar: 630569
Samtals gestir: 132979
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 13:16:11

Vafraðu um

Um okkur

Nafn:

Björgunarsveitin Húnar

Afmælisdagur:

24.febrúar 2007

Heimilisfang:

Höfðabraut 30

Staðsetning:

Hvammstangi

Heimasími:

451 2622

Kennitala:

700307-0930

Bankanúmer:

0159-26-1530
Flettingar í dag: 65
Gestir í dag: 24
Flettingar í gær: 227
Gestir í gær: 73
Samtals flettingar: 630569
Samtals gestir: 132979
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 13:16:11

Tenglar

clockhere
eXTReMe Tracker